Þorskur með pistasíum, grænsprettum og brúnuðu smjöri fyrir 4
VAXA Grænsprettur ( t.d karsi, baunasprettur, sinnep, laukur)
600 gr Þorskur
100 ml dijon sinnep
2 msk hunang
100 gr pistasiu hnetur, muldar Chilliflögur
Ferskt chilli Tómatar
Salt og pipar
200 gr smjör
2 msk soja
Aðferð:
Blandið saman sinnepi og hunangi. Blandið í aðra skál muldum pistasíuhnetum, vel af salti og pipar og chilliflögum. Veltið þorskinum fyrst uppúr sinnepinu og síðan hnetunum. Leggið í eldfast mót ásamt vel af ólífuolíu, tómötum og fersku chilli. Elda á 200 gráðum í 20 mínútur. Sojasmjör: brjúnið smjörið á pönnu, fleytið af froðunni og blandið með 2 msk af soja sósu. Borið fram með nóg af VAXA salatblöndu og ferskum grænsprettum.