Salat með stilton og fíkjum
(meðlæti fyrir 4)
VAXA salat eða VAXA asísk blanda
VAXA sprettur, að eigin vali
3 sneiðar súrdeigsbrauð (best ef það er 1-2 daga gamalt)
½ hvítlauksgeiri, rifinn
20ml cider edik
10gr hunang
50gr stilton ostur
10ml rjómi
Sjávarsalt
Pipar
Olífuolía
Aðferð:
Forhitið ofninn í 160 gráður. Rífið súrdeigsbrauðið í sirka 1cm bita og veltið upp úr olífuolíu, hvítlauk og kryddið með salti og pipar. Ristið brauðið í ofninum í 15 mín. Blandið saman stilton og rjóma, hrærið vel. Skerið fíkjurnar í báta. Blandið saman cider ediki, hunangi og 20ml af olífuolíu, kryddið með salti. Rífið salatið gróflega niður og leggið á disk, raðið síðan stilton ostinum, fíkjunum og ristaða súrdeigsbrauðinu ofan á, klippið sprettur að eigin vali yfir og að lokum hellið edik dressingunni yfir.