Leit

New snacks on sale now for a limited time! Use code NEW for 15% off.

Thai núðlusúpa

Thai núðlusúpa
Thai núðlusúpa fyrir fjóra

1 tsk kummin

1 tsk fennel

1 tsk koriander

1 tsk engifer

1 tsk kanil

1 tsk cajan pipar

Safi úr hálfu lime

125 ml kókosmjólk

1,5 L vatn

2 teningar kjötkraftur

1 msk fiskisósa

1 msk red curry paste

Salthnetur skornar smátt, magn eftir smekk

Chilliflögur

Vel af salti og pipar

Núðlur ca 300gr

Nautakjöt eða kjúklingur 200 gr

Aðferð:

Blanda öllu kryddinu saman og mylja vel þar til orðið að dufti. Setja útí vatnið ásamt nautakrafti og sjóða í 10 mínútur. Bæta lime safa, fiskisósu, red curry og kókosmjólk útí ásamt chilliflögum, salti og pipar.

Núðlurnar soðnar sér og kjötið steikt sér á pönnu , skipt á milli 4 skála og súpunni svo helt yfir. Hnetum, chilli og koriander stráð yfir.