Grillað grænmetissalat , meðlæti fyrir fjóra
VAXA salatblanda
3 stórar gulrætur skornar i bita
½ brokkoli skorið í bita
¼ butternut squash skorið í bita
3 meðal stórar kartöflur skornar í bita
Ólífuolía
Salt og pipar
Chilli flögur
30 gr Feta ostur
Aðferð:
Grænmetið sett í skál og blandað með ólífuolíu, salti, pipar og chilliflögum. Dreift á bökunarplötu og eldað á 175 gráðum í 30 mín. Þegar tilbúið er það tekið út og blandað saman við VAXA salatblöndu, fetaost og chilliflögum stráð yfir
Dressing: 2 msk Ólífuolía,2 msk balsamik edik og smátt skornar VAXA sprettur blandað saman.