Pasta með sítrónubasil og rækjum
VAXA sítrónubasil 20 gr
VAXA hvítlauks grænkál, eftir smekk
Rækjur 400 gr
25 stk kirsuberjatómatar
1 msk sítrónusafi
400 gr pasta
240 ml rjómi
60 ml hvítvín
50 gr rifinn parmesan ostur
Salt og pipar
Chilli flögur
Aðferð:
Sjóðið pasta skv leiðbeiningum. Steikið rækjurnar uppúr olíu, salti,
pipar og chilli flögum þar til gullinbrúnar. Setja til hliðar.
Skera tómata, basil og hvítlauks grænkál og steikja ásamt salti og pipar.
Bæta við rjóma, hvítvíni, sítrónusafa og parmesanosti og láta krauma. Bætið svo rækjum og pasta útí. Borið fram með rifnum parmesan og fersku sítrónu basil.