Fylltar kjúklingabringur
4 kjúklingabringur
VAXA Sinneps grænsprettur, skornar smátt, ca 1 matskeið
VAXA Green sisho grænsprettur, skornar smátt, ca 1 matskeið
10 gr VAXA basil, skorið smátt
30 gr spínat, skorið smátt
1 hvítlauksgeiri, skorinn smátt
40 gr sólþurrkaðir tómatar, skornir smátt
2 msk brauðraspur
100 gr feta ostur, skorinn smátt
3 msk parmesan ostur, rifinn
Vel af salti og pipar
Aðferð:
Öllu hráefni blandað vel saman. Skera vasa í kjúklingabringurnar og skipta fyllingunni jafnt á milli. Setja í eldfast mót og elda á 200 gráðum í 30 mínútur.