VAXA haustsalat

08 Október 2025

VAXA haustsalat
90 – 150 gr. Blandað salat frá VAXA frábært að nota blöndu af babyleaf eða klettasalati og salatblöndu.
2 epli
1 sæt kartafla
0.5 dl saxaðar valhnetur eða pekanhnetur
0.5 dl þurrkuð trönuber
0.5 dl graskersfræ
30 gr. Radísu- og sólblómasprettur frá VAXA

Epla og sinneps dressing:
1 msk eplaedik
3 msk ólífuolía
1/2 msk Dijon-sinnep
1 msk hunang eða sæta að eigin vali
Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:
Skerið sæta kartöflu í litla bita og bakið í ofni á 200 gráðum í 20 mínútur, kryddið með chili flögum, salti og skvettu af ólífuolíu og bakið þar til bitarnir eru vel gylltir, leyfið aðeins að kólna.
Skerið epli í þunnar sneiðar.
Hrærið vel saman öllum innihaldsefnum í dressingunni í skál.
Setjið salat blöndu fyrst raðið svo fallega eplaskífunum yfir salatið, stráið sætukartöflubitunum, hnetunum, trönuberjum og graskerfræjum yfit toppið með dressingu og í lokin toppið salatið með sprettum til að fullkomna þetta salat.