Sweet chillí kjúklingavefjur með kóríander og sprettum
Stórar vefjur
700 g kjúklingalæri
Salt og pipar
4 hvítlauksgeirar
u.þ.b. 2-3 cm engifer
1 dl sweet chillí sósa + meira beint á vefjurnar
1 msk soja sósa
1 msk ólífu olía
Salatblanda frá VAXA
Gulrætur
Rauð paprika
Sólblóma og radísu sprettur frá VAXA
Kóríander frá VAXA
Sesamfræ
Aðferð
Setjið kjúklingalærin í skál ásamt salt og pipar. Rífið hvítlauksgeira og engifer út á með rifjárni. Setjið einnig chillí sósu, soja sósu og ólífu olíu. Blandið öllu vel saman og leyfið að marinerast í 30 mín (lengur ef tími gefst til, má líka elda strax ef enginn tími gefst í marineringu).
Steikið á pönnu þar til eldað í gegn. Skerið í strimla.
Skerið gulrætur og paprikur í strimla.
Setjið svolítið af chillí sósu á vefjurnar, setjið vel af salatblöndu í botninn, gulrætur og paprikur yfir. Setjið kjúkling ofan á ásamt sprettum, kóríander og svolítið af sesamfræjum. Lokið vefjunum og njótið.