Krispý hrísgrjónasalat með hnetusmjörssósu

06 Nóvember 2026

Krispý hrísgrjónasalat með hnetusmjörssósu

Salat:
800g úrbeinuð kjúklingalæri
Kjúklingakryddblanda
1 agúrka
3–4 gulrætur
1 VAXA salathaus
90g VAXA salatblanda
15g VAXA kóríander
Sýrður rauðlaukur-uppskrift hér að neðan
Krispí hrísgrjón-uppskrift hér að neðan
Hnetusmjörssósa-uppskrift hér að neðan

Sýrður rauðlaukur:
1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
1dl eplaedik
1msk sykur
2dl heitt vatn

Krispý hrísgrjón:
2dl hrísgrjón, ósoðin
1msk sojasósa
1msk sesamolía
1tsk hvítlaukskrydd

Hnetusmjörssósa:
4msk hnetusmjör
3msk sojasósa
3msk hrísgrjónaedik
1msk hunang
1msk sesamolía
2–3 hvítlauksgeirar
¼–½ tsk þurrkaðar chiliflögur
Heitt vatn til að þynna

Byrjið á að útbúa sýrða rauðlaukinn. Skerið rauðlaukinn í mjög þunnar sneiðar og setjið í krukku. Blandið eplaediki, sykri og heitu vatni saman og hellið yfir laukinn. Látið kólna og setjið síðan í ísskáp í a.m.k. 1 klukkustund.


Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Látið þau kólna og gufa vel upp af þeim áður en þau eru bökuð.


Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir- og yfirhita. Setjið kjúklingalærin í eldfast mót og kryddið með kjúklingakryddblöndunni. Bakið í u.þ.b. 25 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn og hefur náð a.m.k. 74°C kjarnhita.


Dreifið soðnu hrísgrjónunum á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Bætið sojasósu, sesamolíu og hvítlaukskryddi saman við og blandið vel. Dreifið hrísgrjónunum jafnt yfir plötuna og bakið í u.þ.b. 20–30 mínútur, eða þar til þau eru orðin gyllt og stökk. Látið þau kólna án þess að hræra í þeim eftir bakstur.


Útbúið hnetusmjörssósuna með því að setja hnetusmjör, sojasósu, hrísgrjónaedik, hunang og sesamolíu í skál. Rífið hvítlauksgeirana út í og bætið chiliflögunum saman við. Hrærið vel saman og bætið heitu vatni smám saman út í þar til sósan er orðin þykkfljótandi.


Skerið salatið niður og setjið í stóra skál ásamt salatblöndunni frá VAXA. Skerið agúrku og gulrætur í þunnar sneiðar eða strimla og bætið út í ásamt sýrða rauðlauknum.


Bætið stökkum hrísgrjónum og svolítill hnetusmjörssósu saman við salatið. Blandið saman.


Skerið kjúklinginn í strimla og raðið honum yfir salatið. Toppið með fersku kóríander og meiri hnetusmjörssósu.