Græn Minestrone með ferskum VAXA kryddjurtum
Stór lúka VAXA basilíka
Stór lúka VAXA steinselja
Smá VAXA dill
1-2 msk ólífuolía
1 laukur, smátt saxaður
2 sellerístönglar, saxaðir
2 hvítlauksrif, söxuð
1 kúrbítur, skorinn í teninga
1 lítið brokkólí, í litlum bitum
150 gr grænar baunir
1 dós cannellini-baunir, skolaðar
1–1,2 l grænmetissoð
2 stórar lúkur VAXA babyleaf og grænkál
1 sítróna, safi + smá börkur
Salt og svartur pipar
Til að toppa:
Rifinn parmesan eða pecorino
Góð ólífuolía
Sítrónubörkur
Hitaðu ólífuolíu í stórum potti. Mýktu lauk og sellerí í 5–6 mínútur.
Bættu hvítlauk út í og steiktu í um 30 sekúndur.
Settu kúrbít, brokkólí og grænar baunir út í. Hrærið í 2 mínútur.
Helltu grænmetissoðinu yfir og bættu cannellini-baununum við. Láttu sjóða rólega í 8–10 mínútur.
Settu babyleaves og kale út í síðustu 1–2 mínúturnar.
Saxaðu basilíku, steinselju gróft. Hrærið þessu svo út í súpuna rétt áður en hún er borin fram ásamt ólífuolíu.
Smakkaðu til með salti, pipar og meiri sítrónu.