Sprettur

Sprettur eru ungar plöntur sem eru uppskornar stuttu eftir að fyrstu blöð myndast. Á þessu stigi eru þær sérstaklega ríkar af vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum. Þær henta einstaklega vel í fjölbreytta matargerð – hvort sem er í salöt, samlokur, heita rétti eða sem ferskt skraut á diskinn. VAXA ræktar spretturnar með sjálfbærum aðferðum í hreinu og stýrðu umhverfi, þar sem áhersla er lögð á gæði, ferskleika og sjálfbæra framleiðslu.

Rauð Radísa (e. Red Radish)

Bragð: Ferskt, piprað eftirbragð.

Næringarinnihald: A, C, E og K vítamín. Járn, kalsíum, magnesíum og sink.

Notkun: Ferskt. Salat, álegg, súpur, kjöt- og sjávarréttir. Má nota á mjög fjölbreyttan hátt, passar einkar vel með avókadó, eggjum, tómötum, osti og á pizzu.

Red Radish

Klettasalat (e. Arugula)

Bragð: Kryddað, piprað og örlítið beiskt.

Næringarinnihald: A, C og K vítamín, fólat, járn, kalsíum, kalíum og magnesíum. Ríkt af andoxunarefnum.

Notkun: Ferskt. Frábært í salöt, á pizzur og flatbrauð, með pasta, eggjaréttum, samlokum og risotto. Passar sérstaklega vel með sítrónu, parmesan, ólífuolíu, balsamik, tómötum, avókadó, eggjum, hvítlauk, chilli, hnetum, fiski og kjúklingi.

Arugula

Baunasprettur (e. Peashoots)

Bragð: Sætt, baunabragð.

Næringarinnihald: B1, B2, B3, C vitamin, kalsíum, kalíum og magnesíum.

Notkun: Ferskt og eldað. Með grilluðum mat, grænmetisréttum, öllu kjöti og fiski. Passar vel með fennel, myntu, pipar, sinnepi, chilli, sellerí, gulrótum*, hvítlauk, engifer, radísu, soja og jafnvel útí couscous.

Peashoots

Hjólkróna (e. Borage)

Bragð: Ferskt, minnir á gúrku.

Næringarinnihald: A, B6, C vítamín, kalsíum, járn, kalíum og magnesium.

Notkun: Fersk og elduð. Í salat, sem álegg, sjávarréttir, súpur, pottréttir, í gin og vodka hanastél. Passar vel með baskiliku, dill, soya og lauk.

Borage

Kóríander (e. Coriander)

Bragð: Sætt með sítruskeim og pipruðum undirtón.

Næringarinnihald: A, B, C, E og K vítamín, kalsíum, járn, kalíum, sink og fosfór.

Notkun: Ferskt og eldað. Í mexíkóskan, indverskan og taílenskan mat. Passar vel með fisk, kjúkling og lambakjöti. Passar vel með avókadó, gulrótum, tómat, kókosmjólk, sítrónu, engifer, myntu , chili og jógúrt.

Coriander

Dill

Bragð: Milt sítrus bragð.

Næringarinnihald: A og C vítamín, járn, magnesíum, kalsíum, kalíum og fosfór.

Notkun: Ferskt, þolir ekki hitun. Með sjávarréttum, stráð yfir súpur og salöt. Passar vel með öllu grænmeti, fetaosti, ólífum, fennel, anís, kóríander, rauðlauk, hvítlauk og lauk.

Dill

Fennel

Bragð: Sætt og milt, lakkrís eftirbragð.

Næringarinnihald: A, C, K vítamín, kalíum og trefjaríkt.

Notkun: Ferskt og eldað. Sjávarréttir, kjöt, grænmetisréttir, indversk og ítölsk matargerð. Sósur, ídýfur, vefjur og salat. Passar vel með lime, tómötum, radísu, ólífum, steinselju og timian.

Fennel

Garðkarsi (e. Garden Cress)

Bragð: Sterkur keimur, bitur en sætur.

Næringarinnihald: Fullt af A,B og C vítamín, járn, kalsíum, magnesíum, joð, króm, fólinsýra.

Notkun: Bæði ferskt og eldað. Með kjöti, fiski, pasta, súpum og í þeyting. Passar vel með sinnepi, chili, sveppum, engifer, hvítlauk, sellerí, rauðrófum, gulrótum, kartöflum, eggjum, ólífum.

Garden Cress

Hvítlauks grænkál (e. Garlic Kale)

Bragð: Milt hvítlauksbragð.

Næringarinnihald: A, B, C, E og K vítamín, járn, kalsíum, zink og aminósýrur.

Notkun: Bæði ferskt og eldað. Með kjöti, fiski, eggjum og salati. Passar vel með lauk, chilli pipar, tómötum, kjúkling og skinku.

Garlic Kale

Grænt Shiso (e. Green Shiso)

Bragð: Mynta, anis.

Næringarinnihald: A, B2 og C vítamín, kalsíum.

Notkun: Ferskt og eldað. Í áfengi eins og gin, romm og vodka drykki. Með fiski, kjöti, pasta og brauðréttum. Passar vel með chilli, vanillu, cummin, soya, engifer, hvítlauk, ferskum ávöxtum, ostum, basiliku og ólífuolíu.

Green Shiso

Fjólublátt hnúðkál (e. Purple Kohlrabi)

Bragð: Milt kálbragð

Næringarinnihald: A,B,C,E og K vítamin, magnesíum, zink, kalíum, járn og kalsíum

Notkun: Bæði ferskt og eldað. Í pottrétti, grænmetisrétti, omelettu, pasta, hrísgrjónarétti. Passar vel með, dill, myntu, gulrótum, kartöflum og heslihnetum.

Purple Kohlrabi

Vorbleikja (e. Land Cress)

Bragð: Sætt.

Næringarinnihald: A, C og E vítamín, járn, kalsíum, magnesíum.

Notkun: Bæði ferskt og eldað. Með fiski og kjöti svo sem kjúkling og svínakjöti. Passar vel með avacado, eplum, gúrku, lauk, hvítlauk og grískrí jógúrt.

Land Cress

Blaðlaukur (e. Leek)

Bragð: Milt og örlítið sætt með léttum laukkeim.

Næringarinnihald: A, C og K vítamín, fólat (B9), járn, kalíum og andoxunarefni.

Notkun: Best ferskt en þolir létta eldun. Hentar vel með eggjum, fiski og kjúklingi. Passar sérstaklega vel með kartöflum, sveppum, avacado, gúrku, sítrónu, smjöri og grískri jógúrt.

Leek

Morgunfrú (e. Marigold)

Bragð: Beiskt, með myntu undirtón.

Næringarinnihald: B, C og K vítamín, fólinsýra og trefjaríkt.

Notkun: Ferskt. Eftirréttir, salöt og drykkir. Passar vel með basilíku, myntu, út í salat og frábært til að toppa eftirrétti svo sem pavlovu og sítrónuköku.

Marigold

Rautt Sinnepskál (e. Mustard Red frills)

Bragð: Piprað sinnepsbragð.

Næringarinnihald: A, C, K vítamín, kalíum og trefjaríkt.

Notkun: Ferskt og eldað. Sjávarréttir, kjöt, grænmetisréttir og salöt. Passar vel með sveppum, aspas, eggjum, osti og olífu olíu.

Mustard Red Frills

Rauðbeðulauf (e. Red Beets)

Bragð: Sætt og jarðkennt.

Næringarinnihald: A, C og K vítamín, járn, kalsíum og magnesíum.

Notkun: Ferskt eða eldað. Gott í salöt, súpur eða sem meðlæti með kjöti eða fiski. Passar vel með fetaosti, balsamik ediki, ólífuolíu, hvítlauk og fennel.

Red Beets

Rauðkál (e. Red Cabbage)

Bragð: Piprað.

Næringarinnihald: A, C og K vítamín, kalsíum og magnesíum.

Notkun: Ferskt. Álegg, salat, meðlæti með kjöti eða fiski. Passar vel með fennel, engifer, hvítlauk, edik, ólífu olíu.

Red Cabbage

Salvía (e. Sage)

Bragð: Sterkt, örlítið beiskt og kryddað.

Næringarinnihald: A, C og K vítamín, járn og kalsíum.

Notkun: Fersk eða þurrkuð. Krydd í súpur, sósur, kjöt- og grænmetisrétti. Passar vel með hvítlauk, smjöri, ólífuolíu, epli, kjöti og pasta.

Sage

Skjaldflétta (e. Nasturtium)

Bragð: Sætt með mildum pipar.

Næringarinnihald: A, B, C og D vítamín, kalsíum, kalíum, járn og trefjaríkt.

Notkun: Bæði fersk og elduð. Passar með kjöti, reyktum fiski, mozzarella, parmesan, fetaosti, hráskinku, gúrku, myntu, sítrónu, kartöflum, lauk, olivum, fennel, hvítlauk.

Nasturtium

Ræktað í Reykjavík