Ofnbakað grasker með salvíu, fetaosti, stökkum valhnetum og graskersfræjum
Dásamlega bragðgott og hátíðlegt salat sem sameinar sætt, salt, stökkt og ferskt. Fullkomið sem glæsilegt meðlæti á hátíðarborðið eða sem léttur og ljúffengur aðalréttur.
1 box salatblanda VAXA
1 box klettasalat VAXA
1/2 butternut-grasker
2 msk. ólífuolía
1 box fersk salvía VAXA
100 gr fetaostur
1/3 bolli valhnetur
Graskersfræ eftir smekk
1 msk. hlynsíróp eða akasíuhunang
Granateplafræ eftir smekk
Salt og pipar
Stökkar valhnetur og graskersfræ
Valhnetur
Graskersfræ
Fersk salvía, smátt söxuð
Hlynsíróp eftir smekk
Smá ólífuolía
Salt
Berjadressing
4 msk. ólífuolía
1 msk. berjasulta
1 msk. hvítvínsedik eða eplaedik
Salt og nýmalaður pipar eftir smekk
Aðferð
Setjið ólífuolíu, berjasultu og edik í litla skál.
Kryddið með salti og pipar.
Hrærið vel saman þar til dressingin hefur blandast vel.
Hellið dressingunni yfir salatið rétt áður en það er borið fram.
Aðferð
Hitið ofninn í 200°C.
Skerið graskerið í sneiðar eða báta og raðið á bökunarplötu með bökunarpappír.
Dreypið ólífuolíu yfir og kryddið með salti og pipar. Bætið ferskum salvíublöðum saman við.
Bakið í 25–35 mínútur eða þar til graskerið er orðið mjúkt og fallega gyllt.
Stökkar valhnetur og graskersfræ
Hitið smá ólífuolíu á pönnu.
Bætið valhnetum, graskersfræjum og smátt saxaðri ferskri salvíu á pönnuna.
Steikið við meðalhita þar til hneturnar og fræin eru farin að ristast og fá fallegan lit.
Bætið hlynsírópi út á pönnuna og blandið vel saman.
Kryddið með salti og leyfið öllu að karamelliserast örlítið. Takið af hitanum og látið kólna.
Samsetning salatsins
Dreifið Vaxa salatblöndunni og klettasalatinu á stórt og fallegt fat.
Raðið ofnbökuðu graskersbátunum yfir salatið.
Myljið fetaostinn yfir.
Dreifið stökkum valhnetum og graskersfræjum yfir salatið.
Toppið með granateplafræjum og ferskum salvíublöðum.
Ber