Próteinríkt sprettu brauð

07 Mars 2026

Prótein og trefjaríkt sprettu brauð með túnfisk, kotasælu og sprettum

Súrdeigsbrauð
Kotasæla
Hágæða túnfiskur
Soðið egg
Blandaðar sprettur frá VAXA
Salt og pipar

Ristið súrdeigsbrauðið og setjið á það vel af kotasælu og túnfisk.

Skerið soðna eggið í 4 hluta og raðið á brauðið, klippið vel af sprettum og raðið ofafn á brauðið.

Kryddið til með salti og pipar og njótið.

Sprettur eru sérstaklega ríkar af vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum og gera allan mat fallegri.