Grænt og vænt bankabyggsalat með agúrku og brokkolí
Fyrir 4:
1 bolli bankabygg, skolað
2 bollar grænmetissoð eða vatn og grænmetiskraftur
1 box VAXA klettasalat, saxað gróft
1 box VAXA basil, saxað gróft
1/3 haus brokkolí, stilkar fjarlægðir og saxað smátt
1/2 agúrka, skorin í litla bita
1-2 vorlaukar, smátt saxaður
Dressing:
1/4 bolli gæða Ólífuolía
4 msk rifinn parmesanostur eða 2 msk næringarger
1 tsk gróft sinnep
2 msk eplaedik eða sítrónusafi
1 msk sæta - akasíhunang eða hlynsýróp
1 hvítlauksrif, marin
3 msk furuhnetur ristaðar stráðar yfir í lokin
Sjávarsalt og svartur pipar
Hreinsið bankabyggið vel yfir rennandi vatni. Setjið í pott með grænmetiðssoðinu - fáið suðuna til að koma upp og lækkið svo og lofið að malla með loki í um 20- 25 mínútur þar til allt vatn er farið og byggið er meyrt en samt með smá bit.
Kælið.
Á meðan bankabyggið sýður skerið brokkolí, agúrku og vorlauk smátt.
Gerið dressinguna í skál eða krukku og hrærið vel saman.
Setjið loks bankabygg, grænmetið, dressinguna í stóra skál og hrærið vel saman.
Kryddið ef til vill aðeins meira með salt og pipar, toppið með ristuðum furuhnetum meira af basil og jafvel enn meira af rifnum parmesan.