Sumarlegt kjúklingasalat með sprettum, mozzarella og hráskinku

15 Maí 2025

900 g kjúklingalæri
1 msk kjúklingakryddblada
90 g salatblanda frá Vaxa
50 g babyleaf frá Vaxa
1/4 gul melóna
1/2 agúrka
60 g serrano skinka
180 g mozzarella litlar kúlur
3-4 radísur
15 g radísu og sólblóma sprettur frá Vaxa


Kryddjurta salatdressing
7 g steinselja frá Vaxa
7 g dill frá Vaxa
1 dl extra virgin ólífu olía
1 hvítlauksgeiri
1 tsk dijon sinnep
1 tsk hunang
salt

Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
Setjið kjúklingalærin á grillið eða smjörpappírsklædda ofnskúffu og kryddið vel með kjúklingakryddblöndu, bakið inn í ofni í 35-40 mín eða þar til þau eru bökuð í gegn.
Útbúið salatdressinguna með því að skera niður smátt steinselju og dill.
Setjið í krukku ásamt ólífu olíu, smátt söxuðum hvítlauk, dijon sinnepi, hunangi og salti. Lokið krukkunni og hristið vel saman.
Setjið í skál salatblöndu og babyleaf, rífið salatið svolítið niður.
Skerið niður gula melónu og agúrku í litla bita og bætið út í skálina, hellið dressingunni yfir og blandið öllu vel saman. Setjið á fallegan disk.
Dreifið yfir hráskinku, gott að rífa hana aðeins niður í smærri bita, dreifið mozzarella kúlum yfir. Notið ostaskera eða mandolín til að skera radísurnar smátt niður og dreifið yfir.
Dreifið að lokum sprettum yfir.
Skerið kjúklinginn niður og leggið yfir salatið.