Philly Cheesesteak Steikarloka með klettasalati og sprettum
Smjör
Laukur
Hvítlauksrif
Súrdeigsbrauð
Mæjónes
Klettasalat frá VAXA
Tómatar
Þunnt skorið nautakjöt (upplagt að nota t.d. mínútusteik eða afganga af góðri steik)
Ostsneiðar
Sprettur – baunasprettur frá VAXA
Bearnaise sósa – heimatilbúin eða keypt
Skerið laukinn í þunnar sneiðar og saxið hvítlaukinn, steikið upp úr smjöri þar til orðið mjúkt og gott.
Skerið sneið af súrdeigsbrauðinu og steikið á báðum hliðum upp úr smjöri.
Setjið þunnt skorið nautakjöt á pönnuna í litla hrúu í því magni sem þið viljið setja á eina brauðsneið. Setjið smjörsteiktan lauk yfir kjötið og ostsneið yfir. Setjið lok á pönnuna og látið osturinn bráðna yfir kjötinu.
Smyrjið brauðsneiðina með mæjónesi og setjið vel af klettasalati á brauðið og tómatsneiðar.
Setjið steikta nautakjötið yfir, toppið með bernaise sósu og sprettum.