Buffalo kjúklingasalatvefjur
3 kjúklingabringur
Kjúklingakryddblanda
1 paprika
1 sellerístöngull
15 g kóríander frá VAXA
½ – 1 dl buffalosósa
1 dl mæjónes
Salt og pipar
Salathaus frá VAXA
Gráðostasósa/Ranchsósa
Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
Kryddið kjúklinginn og bakið inn í ofni þar til eldaður í gegn, u.þ.b. 25-30 mín. Skerið kjúklinginn niður í litla bita (eða tætið hann) og setjið í stóra skál.
Skerið paprikuna og selleríið smátt og saxið kóríanderið. Setjið allt í skálina ásamt buffalo sósu og mæjónesi.
Kryddið með salti og pipar og blandið öllu vel saman. Smakkið til með meiri buffalosósu
Takið blöðin af salathausnum og raðið þeim á bakka. Setjið vel af kjúklingasalatinu á hvert salatblað og berið fram eins og taco.
Gott að setja gráðosta/ranchsósu yfir og jafnvel meira af buffalosósunni.