Sætkartöflumús með salvíu, sítrónu og pekanhnetum

25 Nóvember 2025

Sætkartöflumús með salvíu, sítrónu og pekanhnetum

Fyrir 8-10

1,2 kg sætar kartöflur
250 gr smjör
Safi og börkur frá einni sítrónu
Salt
15 gr. VAXA salvía
100 gr. Pekanhnetur
Hunang

Gott er að geyma stilkana af salvíunni til að bragðbæta soð eða sósur. Allt af kryddjurtinni geymir bragð og því óþarfi að sóa neinu.

Aðferð
Stilltu ofninn á blástur við 190 gráður
Bakaðu kartöflurnar með hýði þangað til þær eru orðan alveg mjúkar.
Á meðan kartöflurnar eru heitar dragðu hýðið af. Hýðið ætti að renna auðveldlega af þeim. Gott er að nota viskastykki svo maðurbrenni sig ekki.
Settu kartöflurnar í pott og hrærðu harkalega og mikið í kartöflunum þangað til þær eru orðnar maukaðar. Einnig er hægt að setja þær í hrærivél eða blandara og mauka þær á sama máta.
Hrærðu sítrónusafa, sítrónubörk og smjör úti og bragðaðu til með salti.
Saxaðu salvíulaufin smátt og hrærðu út í músina. Geymdu nokkur til skreytingar.
Blandaðu pekanhnetunum við 1-2 matskeiðar af hunangi. Settu þær svo á bökunarplötu með bökunarpappír og bakaðu þær við 150 gráður í 10-15 mínútur.
Leyfðu hnetunum að kólna og dreifðu þeim söxuðum eða heilum yfir músina auk nokkrum salvíu laufum til skrauts.