Grísk ídýfa með feta osti, ólífum og kryddjurtum
1 dl hágæða extra virgin ólífu olía
1 msk balsamik edik
2 tómatar
Salt og pipar
1/2 tsk oreganó
1 hvítlauksgeiri
300 g blandaðar ólífur
50 g kapers
200 g feta ostur – hreinn án olíu
15 g mynta
15 g steinselja frá VAXA
15 g dill frá VAXA
Súrdeigs baguette brauð
Setjið olíu á fallegan disk og bætið einnið balsamik edikinu út i olíuna.
Notið rifjárn og rífið tómatinn á diskinn. Kryddið með salti, pipar og oreganó.
Rifið hvítlauksgeirann á diskinn.
Skerið ólífurnar í sneiðar og bætið á diskinn ásamt kapers og brjótið fetaostinn niður á diskinn líka.
Saxið myntu, steinselju og dill og bætið út á diskinn.
Blandið öllu saman og berið fram með nýbökuðu súrdeigs baguette.