Þeyttur basil smurostur
150 gr rjómaostur
1 box fersk VAXA basil
1 hvítlauksrif, pressað
1–2 msk ólífuolía
Ferskur börkur af lífrænni sítrónu
Smá sítrónusafi
1 msk alasíhunang
Salt og pipar eftir smekk
Settu allt í matvinnsluvél eða notaðu töfrasprota.
Þeyttu þar til blandan verður létt og loftmikil.
Smakkaðu til með salti, pipar og sítrónusafa.
Kældu í 15–20 mín áður en borið er fram.
Góður með kexi eða grænmeti, á súrdeigsbrauð, á grillaðar sætar kartöflur eða sem meðlæti með grillmat.
Hægt að poppa smurostinn upp með því að bæta við rifnum parmesan, setja ristaðar furuhnetur yfir eða smá chili fyrir meiri hita.