Pestó & prosciutto samloka

18 Júní 2026

Ómótstæðileg pestó & prosciutto samloka

Fersk mozzarella, silkimjúk prosciutto skinka, ilmandi basilíka og bragðmikið grænt pestó koma saman í þessari einföldu en ótrúlega góðu samloku. Klettasalatið gefur henni ferskleika og smá piparkeim sem passar fullkomlega með mildri mozzarella og saltri hráskinkunni.

1 Baguette
Grænt pestó
30 g klettasalat frá Vaxa
Prosciutto skinka
1 fersk mozzarella kúla
15 g basilíka frá Vaxa

Skerið baguette brauðið endilangt og smyrjið bæði efri og neðri hlutann með grænu pestói.

Setjið klettasalatið á neðra brauðið, skerið mozzarella kúluna í sneiðar og leggið ofan á klettasalatið.

Raðið prosciutto skinku yfir og dreifið basil yfir allt.

Lokið með efra brauðinu og skerið í bita.