Fyrir 6-8
4 stk soðnar rauðrófur
1 poki heslihnetur án hýðis
1 pakki VAXA dill
1 pakki hindber
Góð ólífuolía
4 msk Epla edik
2 msk Hunang
Flögusalt
- Skerðu rauðrófurnar í meðalstóra teninga (ca. 1 cm. *1 cm.) og settu í skál.
- Bakaðu heslihneturnar á 150°c í 12-15 mínútur, saxaðu þær síðan gróflega með hníf og settu þær út í skálina með rauðrófunum. Geymdu nokkrar til skreytinga.
- Plokkaðu nokkra fallega topa af dillinu til skreytingar, saxaðu restina og settu í skálina.
- Helltu um það bil 4 msk. af eplaediki yfir ásamt 2 msk. af hunangi.
- Helltu svo vænum skammti af ólífuolíu yfir ásamt 1-2 tsk. af salti.
- Blandaðu þessu öllu vel saman.
- Skerðu hindberin til helminga og settu í skálina og blandaðu aftur saman, en í þetta skiptið varlega svo þú maukir ekki hindberin. Geymdu ef til vill nokkra helminga af hindberjunum til skreytingar.
- Helltu salatinu í fallega skál og puntaðu með dilltoppunum og hinberjunum.