Einfalt pasta í brúnuðu salvíu smjöri
250 gr pasta (t.d. Penne, tagliatelle eða ravioli)
80 gr smjör
10-12 fersk VAXA salvíublöð
1 hvítlauksrif, smátt saxað
½ lífræn sítróna (safi og hýði, eftir smekk)
50 gr rifinn parmesan
Sjávar salt og nýmalaður svartur pipar
Frábært að bæta við ristuðum furuhnetum, valhnetum eða heslihnetum.
Einnig má gjarnan bæta við auka próteini eins og t.d. kjúkling, hvítum baunum.
Aðferð:
Sjóðið pastað í söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Geymið um ½ bolla af pastavatni.
Á meðan pastað sýður, bræðið smjörið á pönnu eða í potti við miðlungshita. Bætið salvíublöðunum út í og eldið þar til þau verða stökk og smjörið fer að dökkna og ilma vel (3–5 mín). Ef þú vilt nota hvítlauk, bættu honum við í lokin og láttu malla í nokkrar sekúndur.
Taktu pönnuna af hitanum, kreistu sítrónusafa yfir og bættu 1-2 matskeiðum af pastavatni út í til að binda sósuna.
Blandaðu pastanu saman við sósuna, hristu eða veltið öllu varlega þar til pastað er húðað.
Kryddaðu með salti, pipar og sítrónuhýði.
Berið fram með ferskum parmesan og nokkrum stökkum salvíublöðum ofan á.