Kjúklingasalat á naan brauði

28 Október 2025

Kjúklingasalat á naan brauði

Naanbrauð

Kjúklingasalat
700 g kjúklingalæri
2 msk kjúklingakryddblanda
90 g salatblanda frá Vaxa
u.þ.b. 350 g súrar gúrkur
1 rauðlaukur
15 g kóríander frá Vaxa
15 g steinselja frá Vaxa

Sósa
2 dl grískt jógúrt
3 msk mæjónes
1 hvítlauksgeiri, rifinn
1 tsk papriku krydd
1/4 tsk cumin
Salt

Aðferð
Útbúið naanbrauðs deig að eigin vali og leyfið því að hefast.
Kryddið kjúklingalærin og steikið þau á pönnu þar til elduð í gegn. Það er líka hægt að steikja þau þar til falleg húð myndast á þau og setja svo í eldfast mót og elda þau inn í ofni þar til elduð í gegn, ef þér finnst það þægilegra.
Steikið naanbrauði á meðan kjúklingurinn er að eldast.
Skerið niður salat, súrar gúrkur, rauðlauk, kóríander og steinselju smátt niður og setjið í skál.
Skerið einnig kjúklinginn smátt niður þegar hann er tilbúinn og bætið í skálina.
Hrærið saman mæjónesi, grískri jógúrt, rifnum hvítlauksgeira, paprikukryddi, cumin og salti.
Bætið u.þ.b. 2 msk af sósu út í salatið og blandið öllu saman.
Setjið smá sósu á naan brauði og svo salatið.