Caprese salatkrans með basil pestó

03 Desember 2025

Caprese salatkrans með basil pestó

Basilpestó
30 g basilíka frá VAXA (7 g tekin frá til að skreyta salatið með í lokin)
7 g steinselja frá VAXA
1 hvítlauksgeiri
Safi úr 1/2 sítrónu
1 msk furuhnetur
1 dl rifinn parmesan
1 dl ólífu olía
Örlítið salt

Salat
60 g Klettasalat frá VAXA
250 litlir tómatar
180 g litlar mozzarella kúlur
Basilíka frá VAXA (afgang frá úr pestóinu)
1 msk furuhnetur
Balsamik gljái

Aðferð
Byrjað er á því að gera pestóið með því að setja basilíku (skiljið smá eftir til að skreyta bakkann með á eftir), steinselju, hvítlauksgeira, safa úr sítrónu, furuhnetur, parmesan, ólífu olíu og salti í blandara, blandið þar til gróflega maukað saman.
Setjið litla skál öfuga á stóran disk til að auðvelda kransalagið á salatinu. Setjið klettasalatið á diskinn umhverfis skálina.
Raðið litlum tómötum og mozzarella kúlum á diskinn, dreifið einnið pestóinu víðsvegar um salatið.
Takið skálina af diskinum og skreytið með basilíku laufum, furuhnetum og balsamik gljáa.