10-15 snittur
200 gr. Reyktur landeldislax
15 stk blinis pönnukökur
Einnig er hægt að nota snittubrauð, skera það í sneiðar og baka með ólífuolíu í stað blinis.
1 krukka Piparrótarmæjónes frá Stonewall
1 stk. Piparrót
1 pakki VAXA dill
- Skerðu laxinn í eins þunnar sneiðar og mögulegt er.
- Saxaðu dilið smátt og hrærðu út í piparrótarmæjónesið. Geymdu nokkra fallega dillstilka til skreytingar.
- Setta uþb. 1 teskeið af mæjónesinu á pönnukökurnar eða snittubrauðið.
- Leggðu laxasneiðarnar ofan á. Gaman er að leika sér smá með framsetningu og prófa sig áfram með að fá form og hæð í sneiðarnar.
- Skrældu piparrótina og notaðu fínt rifjárn til að rífa vænan skammt yfir snitturnar.
- Skreyttu með dilli.