Sítrónupasta með rjómaostasósu
400 g pasta
800 g risarækjur
4-5 hvítlauksgeirar
200 g rjómaostur
250 ml pastavatn (vatnið sem pastað er soðið í)
1 sítróna
50 g Babyleaf frá VAXA
Salt og pipar
15 g Basilíka frá VAXA
Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum, takið frá 250 ml af pastavatninu áður en þið hellið vatninu aff pastanu þegar það er soðið. Pastavatnið verður notað í sósuna.
Steikið rækjurnar upp úr olíu, kryddið þær með salti og pipar.
Takið rækjurnar af pönnunni þegar þær eru fulleldaðar og geymið á disk. Ekki þrífa pönnuna.
Rífið hvítlauksgeirana niður og steikið á pönnunni með smá 0líu. Bætið rjómaostinum og svolítið af pastavatninu út á pönnuna. Hrærið öllu saman, rífið börkinn af sítrónunni út á pönnuna og kreytstið sítrónusafann úr 1/2 sítrónunni.
Bætið babyleaf salatinu út á pönnuna og setjið restina af pastavatninu út í, hrærið allt saman og látið malla þar til sósan er byrjuð að þykkna. Smakkið til með salti og pipar.
Bætið pastanu og risarækjunum út í og blandið öllu saman.
Berið fram með ferskri basilíku.