Haustsúpa toppuð með ferskum kryddjurtum

23 September 2025

Haustsúpa toppuð með ferskum kryddjurtum

1-2 msk ólífuolía
1 laukur (saxaður smátt)
2–3 hvítlauksrif (pressuð eða söxuð)
2 gulrætur (saxaður smátt)
1 meðalstór sæt kartafla (flysjuð og söxuð smátt)
1 dós niðursoðnir tómatar (eða 2 ferskir, skornir)
1 -2 msk fersk VAXA basilika (söxuð gróft)
1 – 2 msk fersk VAXA steinselja (söxuð gróft)
1 tsk þurrkað timjan
1 bolli linsubaunir (valfrjálst)
1 lítri grænmetissoð (eða vatn + kraftur)
Salt og pipar eftir smekk
Ferskar VAXA kryddjurtir til að toppa súpuna

Aðferð:
Hitið ólífuolíu í potti og steikið lauk og hvítlauk í um 2 mínútur eða þar til laukurinn er orðin glær. Bætið við gulrótum og sætri kartöflu, steikið í aðrar 2–3 mínútur.
Hellið tómötum, grænmetissoði út í, ásamt linsubaununum (frábærar til að bæta prótein og trefjum við súpuna)
Láta sjóða í 15–20 mínútur, eða þar til grænmetið er mjúkt og baunirnar soðnar.
Smakkið til með salti og pipar.
Blandið súpuna með töfrasprota og hellið í skálar.
Tilvalið að toppa súpuna með meira af ferskum kryddjurtum eins og basil og steinselju og einnig eru VAXA sprettur frábær viðbót sem skraut og til að fá aukna næringu.