Ferskt salat með parmaskinku, brómberum, peru og sprettum

26 Mars 2026

Ferskt salat með parmaskinku, brómberum, peru og sprettum

30 g klettasalat frá VAXA
1 pera
70 g parmaskinka
75 g brie ostur
30 g furuhnetur
Brómber
Blandaðar sprettur frá VAXA
Hágæða ólífu olía
Smá gróft sjávarsalt

Dreifið klettasalati á fallegan disk.

Skerið peru í þunna báta og raðið á diskinn.

Rífið parmaskinkusneiðarnar í tvennt og raðið á diskinn.

Skerið brie ostinn í litlar sneiðar og dreifið um allt ásamt furuhnetum og brómberjum.

Klippið spretturnar og dreifið yfir diskinn.

Hellið svolítið af ólífu olíu yfir og setjið örlítið af salti yfir.