Basil dressing

15 Apríl 2026

Vaxa Basil Dressing

Dressingin er fullkomin með einföldu grænu salati og sprettum, toppað með parmesan. Einnig ótrúlega góð í kínóa-, bankabygg- eða hrísgrjónasalöt, með bökuðu grænmeti eða í klassísku tómat- og mozzarella salat.

1-2 box VAXA Basil, gróft saxað (því meira af Basil því betra)
1 bolli gæða ólífuolía
1/3 bolli balsamik edik
1/4 bolli sæta, akasíu hunang eða hlynsíróp
1 hvítlauksrif, pressað
3 msk ristaðar kasjúhnetur eða ristaðar furuhnetur
smá salt og pipar

Setjið allt saman í krukku eða skál og hristið eða hrærið saman.