Þorskur með kryddjurtum og sítrónu
800 g þorskhnakkar
5 hvítlauksgeirar
1 sítróna
15 g steinselja frá VAXA
15 g dill frá VAXA
100 g smjör
1 dl hveiti
Salt og pipar
1 egg
250 g litlir tómatar
Skerið þorskhnnakkana í þægilega bita.
Setjið egg í skál og hrærið því saman.
Saxið steinseljuna og dillið smátt niður og bætið í skál, rífið börkinn af sítrónunni ofan í skálina og rífið einnig hvitlauksrifin ofan í hana.
Blandið öllu saman.
Setjið hveiti í skál og setjið helminginn af kryddjurtablöndunni í hveitið ásamt salti og pipar.
Blandið öllu saman.
Setjið þorskhnakkana fyrst ofan í eggjaskálina og veltið þorskinum upp úr eggginu, setjið svo ofan í hveiti+kryddblönduna og hjúpið þorskinn.
Steikið hann á báðum hliðum á pönnu upp úr u.þ.b. 1 msk af smjöri. Skerið tómatana í helminga og leyfið þeim að malla á pönnunni á meðan þorskurinn er að eldast.
Bræðið smjörið og bætið því ofan í skálina með því sem eftir er af kryddjurtunum, blandið saman.
Þegar þorskurinn er eldaður í gegn, bætið þá kryddsmjörinu yfir og kreistið svolítið af sítrónusafa yfir.