Kryddjurtaostur með trönuberjum og pekanhnetum

10 Desember 2025

Kryddjurtaostur með trönuberjum og pekanhnetum

Fyrir ca. 8 - 10

400 gr. rjómaostur
300 gr. grískur fetostur
50 gr þurrkuð trönuber
50 gr pekanhnetur
50 gr aprikósur
Rifinn börkur af hálfri sítrónu
Rifinn börkur af hálfri appelsínu
2 tsk sjávarsalt salt
1 tsk þurrkað majoram, timian, rósmarín eða oregano eftir smekk
15 gr. VAXA steinselja
15 gr. VAXA basil

Aðferð

Settu trönuber, pekanhnetur, aprikósur, sítrusberkinum og þurrkrydd í matvinnsluvél, í blender eða í skál og notist við töfrasprota og maukið þar til fínt.
Bættu ostinum út í og blandaðu vel saman við blönduna.
Smyrðu form sem hentar vel fyrir ostinn og settu plast filmu í botninn á forminu.
Helltu ostablöndunni út í og skelltu forminu í borðið nokkrum sinnum til að koma í veg fyrir að það myndist holur í ostinum.
Settu plastfilmu yfir formið og geymdu á kæli í að minnsta kosti 3-4 tíma fyrir notkun.
Hvolfaðu ostinum úr forminu og dragðu plastfilmuna rólega af.
Saxaðu Steinselju og basil fínt og dekkaðu ostinn með kryddjurtablöndunni einnig hægt að rífa niður sítrusbörk eftir smekk.
Berðu fram með kexi eða smjörsteiktu brauði.