Sætar kartöflur með salvíu, parmesan og brenndu smjöri
VAXA salvíu sprettur
200gr brennt smjör
4 meðalstórar sætar kartöflur
50 gr Parmesan ostur, rifinn
1 hvítlauksgeiri
Salt og pipar
Aðferð:
Brúna smjör á pönnu og fleyta froðuna af.
Saxa hvítlauks geirann smátt og setja út í smjörið.
Skera sætar kartöflur í bita, salta og pipra vel og setja í eldfast mót.
Smjörinu helt yfir og kartöflurnar bleyttar vel í því. Baka í miðjum
ofni á 200 gráðum í 20 mínútur. Þá er rifnum parmesan stráð yfir
og bakað þar til osturinn er orðinn brúnn.
Smátt skornum salvíu sprettum dreift yfir áður en borið er fram.